Nú gefst ykkur tækifæri á því að taka þátt í léttri fjórhjólakeppni á vegum AÍFS.
Sumardaginn fyrsta (22apr) höldum við leikdag í samvinnu við fjölskyldudag Kadeco en það er árviss viðburður sem dró að um 13 þúsund manns í fyrra. Við þetta tilefni verður haldin fyrsta Fjórhjólatorfæran og við höfum gert braut sem liggur í gegnum hindranir eins og brekkur hliðarhalla og annað torleiði. Brautin verður ekin á tíma en við leggjum upp með að allir geti tekið þátt án þess að eiga það á hættu að skemma tækin sín. Þannig er bæði hægt að velja örugga leið og taka styttri leið sem þarfnast þá aðeins meiri kjarks
Þáttaka er frjáls öllum eigendum skráðra hjóla (torfæru eða götu)
Kíkið inn á
http://aifs.is/frettir/fjorhjoladeild/76-4hkeppni og skráið ykkur,